LEX hlýtur jafnlaunavottun
LEX lögmannsstofa hefur hlotið formlega jafnlaunavottun, en vottunin staðfestir að LEX starfrækir jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur sem settar eru fram í staðlinum ÍST 85:2012 og nær til allra starfsmanna LEX.
Í jafnlaunastefnu LEX segir m.a. „LEX greiðir laun eftir umfangi og eðli starfa og taka mið af þeim kröfum sem störf gera óháð kyni. Forsendur launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við kjarasamninga, studdar rökum og tryggi að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf.“
