Guðjón Ármannsson
Guðjón Ármannsson er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti. Guðjón hóf störf hjá LEX árið 2007 en starfaði áður hjá óbyggðanefnd.
Guðjón sérhæfir sig í rekstri dómsmála og hefur sérfræðiþekkingu á sviði eignaréttar, auðlindaréttar, skaðabótaréttar, stjórnsýsluréttar, útboðsréttar og skipulags- og byggingarlöggjafar.
Guðjón er einn helsti málflytjandi LEX og hefur rekið rúmlega 80 mál í Hæstarétti Íslands og flutt yfir tvö hundruð mál fyrir Landsrétti og í héraði. Eru umbjóðendur Guðjóns einstaklingar, fyrirtæki, opinberir aðilar og sveitarfélög.
Meðal þeirra mála sem Guðjón hefur flutt í Hæstarétti eru stór mál á sviði eignarréttar þar sem fallið hafa stefnumarkandi dómar. Mörg þessara mála lúta að ágreiningi um eignarhald lands og deilna um auðlindir á borð við vatns- og veiðiréttindi. Þá gætti Guðjón hagsmuna Kópavogsbæjar í deilum um lögsögumörk sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem lauk með dómi Hæstaréttar 2017. Þá hefur Guðjón flutt fjölda dómsmála er tengjast ágreiningi um jörðina Vatnsenda í Kópavogi.
Guðjón var skipaður árið 2021 í matsnefnd samkvæmt lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði. Guðjón hefur einnig tekið sæti matsnefnd eignarnámsbóta. Þá hefur hann sinnt kennslu í eignarétti við lagadeildir Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Jafnframt hefur Guðjón verið prófdómari með meistararitgerð í lagadeild Háskóla Íslands og var um skeið leiðbeinandi með BA-ritgerðum við sömu lagadeild.
- Hæstiréttur
- Landsréttur
- Héraðsdómstólar
- LEX2007-
- Óbyggðanefnd2004-2007
- Hæstaréttarlögmaður2013
- Héraðsdómslögmaður2007
- Háskóli Íslands, embættispróf frá lagadeild 2005
- Árósarháskóli2004
- Menntaskólanum að Laugarvatni 1998