Beint í efni
Starfssvið

Bankar og fjármagnsmarkaðir

Bankar og fjármagnsmarkaðir

LEX hefur á að skipa einu reyndasta teymi landsins á sviði banka- og fjármagnsmarkaða og hefur sérstöðu sem leiðandi ráðgjafi til fyrirtækja og fjárfesta á fjármálamarkaði.

Landscape

Sérhæfð þekking
 og reynsla

LEX hefur á að skipa einu reyndasta teymi landsins á sviði banka- og fjármagnsmarkaða og hefur markað sérstöðu sem leiðandi ráðgjafi til fyrirtækja og fjárfesta á fjármálamarkaði.

Sérfræðingar LEX veita ráðgjöf um hvaðeina sem snýr að regluverki og skipulagi fjármálastofnana, verðbréfafyrirtækja, rekstraraðila verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða, auk annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði, sem og samskiptum þeirra við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands eða önnur stjórnvöld, svo sem í tengslum við fylgni við lög og reglur, starfsleyfi, hæfismöt, öflun virkra eignarhluta og markaðssetningu. Á meðal viðskiptavina LEX eru innlendar og erlendar fjármálastofnanir, verðbréfafyrirtæki, rekstraraðilar verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða, lífeyrissjóðir, sem og aðrir fjárfestar.

Sérfræðingar LEX hafa jafnframt víðtæka þekkingu á því flókna regluverki sem gildir um fjármálagerninga sem skráðir eru í kauphöll. Í því sambandi veitir LEX útgefendum skráðra verðbréfa ráðgjöf, meðal annars í tengslum við regluvörslu, innri reglur, upplýsingagjöf og mat á upplýsingaskyldu, skráningu á markað og samskipti við eftirlitsstjórnvöld. Sérfræðingar LEX hafa komið að ráðgjöf í tengslum við allar helstu yfirtökur og afskráningar skráðra félaga síðastliðin ár.

Sérfræðingar okkar fyrir
bankar og fjármagnsmarkaðir