Beint í efni
Starfssvið

Yfirtökur og samrunar

Yfirtökur og samrunar

Eigendabreytingar fyrirtækja geta átt sér margvíslegar ástæður. Mikilvægt er að undirbúningur og framkvæmd slíkra breytinga sé fagleg og vönduð til að tryggja hagsmuni aðila. Sérfræðingar LEX lögmannstofu hafa áratugareynslu í ráðgjöf við kaup, sölu eða samruna fyrirtækja.

Fjármálafyrirtæki

Sérhæfð þekking og reynsla

Samningar vegna kaupa og sölu fyrirtækja hafa orðið flóknari með tímanum. Á undanförnum áratugum hefur eðli fyrirtækja gjörbreyst, sérstaklega varðandi hvar verðmæti í rekstri þeirra liggja. Hugverk, reynsla starfsmanna og viðskiptasamningar mynda nú stóran hluta verðmæta fyrirtækja, á meðan áður var einkum litið til fasteigna og framleiðslutækja. Hert löggjöf á ýmsum sviðum hefur einnig leitt til þess að varlega þarf að fara við eigendaskipti á fyrirtækjum.

Sérfræðingar LEX á sviði kaupa, sölu og samruna fyrirtækja hafa veitt ráðgjöf í nánast öllum stærstu fyrirtækjaviðskiptum á Íslandi á undanförnum árum, bæði innanlands og milli landa. Þeir veita reglulega ráðgjöf til viðskiptavina sinna í slíkum verkefnum af öllum stærðum og gerðum. Við vinnu sína nýta þeir aðstoð frá sérfræðingum á viðeigandi sviðum, svo sem í samkeppnisrétti, hugverkarétti og skattarétti, til að tryggja bestu mögulegu niðurstöðu.

Ráðgjöf við skráningu félaga á skipulegan verðbréfamarkað hafa á undanförnum árum orðið sífellt fyrirferðarmeiri í starfssemi LEX sem og ráðgjöf við yfirtökutilboð skráðra félaga.

Sérfræðingar okkar fyrir
yfirtökur og samrunar