Auðlindir, orka og umhverfi

LEX hefur um árabil verið í fararbroddi í orku-, auðlinda- og umhverfisrétti og hefur á að skipa einu reyndasta teymi landsins á þessum réttarsviðum.

Sérhæfð þekking og reynsla
Hjá LEX starfa reynslumiklir sérfræðingar sem sinna fjölbreyttum verkefnum á sviðum orku- og auðlindanýtingar sem og umhverfisréttar, bæði til ráðgjafar og hagsmunagæslu í ágreiningsmálum til sóknar eða varnar.
Auðlindanýting til orkuvinnslu, önnur nýting vatns- eða jarðefna auk uppbyggingar tengdra innviða hefur í för með sér fjölbreyttar áskoranir. Oftar en ekki vegast þar á hagsmunir af nýtingu auðlindanna og náttúruverndarhagsmunir en einnig þarf að huga að þörfum ólíkra aðila svo sem landeigenda, sveitarfélaga, íbúa, atvinnulífs og ferðaþjónustu.
Loftslagsbreytingar, fólksfjölgun og stóraukinn fjöldi ferðamanna hér á landi hafa sett mark sitt á þessi viðfangsefni. Að auki hafa skuldbindingar Íslands haft mikil áhrif á regluverk í umhverfis- og auðlindamálum og þeim fylgja m.a. metnaðarfull markmið um orkuskipti og kröfur ábyrga nýtingu auðlinda.
Sérfræðingar LEX hafa mikla reynslu af ráðgjöf og hagsmunagæslu varðandi jarðhita, vindorku, lands-, vatns- og námuréttindi, auk þess að styðja viðskiptavini við leyfisumsóknir og leyfisveitingar vegna ýmiss konar auðlindanýtingar, orkuvinnslu og tengdrar starfsemi.
Einnig ráðleggjum við sveitarstjórnum, landeigendum og framkvæmdaraðilum um landnýtingu og skipulagsmál í samhengi við auðlindanýtingu eða náttúru- og umhverfisvernd, auk þess að veita lögfræðilega ráðgjöf varðandi mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana.
Þá höfum við mikla reynslu af raforkumálum og lagningu flutningskerfis raforku, ásamt eignarnámi, úrgangsmálum, losun og mengun. Við veitum einnig aðstoð vegna framkvæmda og atvinnustarfsemi í þjóðgörðum og öðrum verndarsvæðum, auk þess að reka ágreiningsmál fyrir stjórnvöldum og dómstólum.
Í gegnum tíðina hefur LEX komið að ráðgjöf fyrir öll helstu orkufyrirtæki landsins, sveitarfélög, íslenska ríkið og ríkisstofnanir.