Beint í efni
Starfssvið

Gjaldþrotaréttur og fjárhagsleg endurskipulagning

Gjaldþrotaréttur og fjárhagsleg endurskipulagning

Faglegt, áreiðanlegt og öruggt . Áralöng reynsla af úrlausn flókinna viðfangsefna og leiðsögn til endurskipulagningar.

Súlur

Sérhæfð þekking og reynsla

Hjá LEX lögmannsstofu starfa sérfræðingar með víðtæka reynslu á sviði gjaldþrotaréttar og fjárhagslegrar endurskipulagningar. LEX hefur um árabil byggt upp víðtæka þekkingu sem gerir okkur kleift að veita faglega og markvissa ráðgjöf í öllum þáttum gjaldþrotaskipta, nauðasamninga, frjálsra skuldauppgjöra og annarra lausna fyrir aðila í fjárhagsvanda. Hvort sem um ræðir hagsmunagæslu kröfuhafa, ráðgjöf til skuldara eða stjórn þrotabúa býr LEX yfir sérhæfðri þekkingu og strategískri nálgun sem tryggir viðskiptavinum okkar trausta þjónustu.

Einn af helstu styrkleikum LEX er þverfaglegt samstarf milli sérfræðinga á ólíkum sviðum lögfræðinnar, sem skiptir sköpum í verkefnum sem snúa að gjaldþrotaskiptum og fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja. Í slíkum tilvikum reynir oft á þekkingu í félagarétti, fjármagnsrétti, eignarétti, auðkennarétti, kröfurétti, veðrétti, samkeppnisrétti og skattarétti. Þessi samþætta nálgun gerir okkur kleift að veita alhliða ráðgjöf sem styður við hagsmuni viðskiptavina okkar á sem skilvirkastan hátt.

Þjónusta okkar nær til allra þátta fjárhagslegrar endurskipulagningar, þar á meðal hagsmunagæslu fyrir kröfuhafa í gjaldþrotaskiptum, stjórnun þrotabúa, aðstoð á greiðslustöðvunartíma og nauðasamninga samkvæmt gjaldþrotalögum. LEX veitir einnig ráðgjöf um frjáls skuldauppgjör, endurfjármögnun, eignasölu og samruna fyrirtækja.

X hefur aðstoðað fjölmarga viðskiptavini í mikilvægum verkefnum á þessu sviði, þar á meðal við nauðasamninga fyrir Eir hjúkrunarheimili og Búmenn bsvf., aðstoð á greiðslustöðvunartíma United Silicon, auk þess að hafa annast stjórnun hundruða þrotabúa, allt frá minni fyrirtækjum til stórra félaga. Með markvissri nálgun og sérhæfðri þekkingu tryggjum við bestu mögulegu lausnir fyrir viðskiptavini okkar í krefjandi fjárhagslegum aðstæðum.

Sérfræðingar okkar fyrir
gjaldþrotaréttur og fjárhagsleg endurskipulagning