Verktakar, útboðsmál og opinber innkaup

LEX lögmannsstofa veitir viðskiptavinum heildræna þjónustu á sviði verktakaréttar, útboðsmála og opinberra innkaupa. Sérfræðingar stofunnar hafa yfir að ráða áralangri reynslu af ráðgjöf til fyrirtækja á þessum sviðum.

Sérhæfð þekking og reynsla
LEX hefur um langt skeið unnið að stórum verklegum framkvæmdum með helstu opinberu aðilum og verkfræðistofum landsins, auk ýmissa verktaka og annarra ráðgjafa. LEX hefur víðtæka reynslu í ráðgjöf vegna ágreiningsmála sem upp kunna að koma bæði í tengslum við framkvæmd opinberra innkaupa eða framkvæmd verksamninga, bæði fyrir dómstólum, gerðardómi og kærunefnd útboðsmála.
Lögmenn stofunnar hafa rekið fjölda mála fyrir fyrirtæki sem telja að brotið hafi verið á rétti þeirra í tengslum við opinber innkaup sem snúa að bæði vöru-, þjónustu- og verksamningum. Þá hafa þeir tekið til varna fyrir opinbera aðila í sambærilegum málum.
Reynslumikið teymi lögmanna LEX veitir ráðgjöf á öllum sviðum verklegra framkvæmda, svo sem við gerð útboðsgagna og verksamninga, og úrlausn ágreiningsmála, hvort sem er með samningaviðræðum eða fyrir dómi.
Sérfræðingar LEX á sviði gerðardómsréttar vinna náið með sérfræðingum félagsins á sviði verktaka- og útboðsréttar í því skyni að tryggja hagfellda úrlausn þeirra ágreiningsmála sem upp kunna að koma.
LEX bíður upp á alhliða ráðgjöf við gerð útboðsgagna og annst rekstur ágreiningsmála fyrir kærunefnd útboðsmála og dómstólum, komi upp vafamál eða möguleg brot á reglum um opinber innkaup. Einnig veitum við ráðgjöf við gerð verksamninga, ásamt hagsmunagæslu í ágreiningsmálum er varða uppgjör verksamninga og verkframkvæmd. Þá tökum við að okkur rekstur ágreiningsmála fyrir dómstólum og gerðardómi vegna verksamninga, auk þess sem við semjum álitsgerðir um réttarstöðu á framangreindum réttarsviðum.
Í vinnu sinni á framangreindum sviðum hefur LEX sinnt ráðgjöf til Nýs Landspítala ohf., til stærstu verkfræðistofa og orkufyrirtækja á Íslandi auk fjölda opinberra aðila.