Stjórnsýsla, opinberir aðilar og skipulagsmál

LEX lögmannsstofa veitir viðskiptavinum alhliða þjónustu á sviði stjórnsýsluréttar og skipulagsmála. Sérfræðingar stofunnar hafa áralanga reynslu af ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja og opinberra aðila á þessum sviðum, sem tekur bæði til almennrar ráðgjafar og meðferðar ágreiningsmála fyrir úrskurðaraðilum og dómstólum.

Sérhæfð þekking og reynsla
LEX hefur frá upphafi veitt einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum yfirgripsmikla og sérhæfða þjónustu á sviði stjórnsýsluréttar, skipulagsmála og tengdra réttarsviða. Verkefnum á þessum sviðum hefur fjölgað hratt, enda verður regluverk stjórnsýsluréttarins sífellt viðameira og einstaklingar og lögaðilar meðvitaðri um rétt sinn.
Lögmenn LEX búa yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á öllum þáttum stjórnsýsluréttarins, hvort sem um er að ræða ráðgjöf, aðstoð við leyfisumsóknir, hagsmunagæslu fyrir umboðsmanni Alþingis eða rekstur ágreiningsmála fyrir úrskurðaraðilum og dómstólum. Þá veitir LEX sveitarfélögum margvíslega ráðgjöf við meðferð skipulagsmála og gætir einnig hagsmuna einstaklinga og fyrirtækja í slíkum málum, svo sem við mat á réttarstöðu þeirra og gerð stjórnsýslukæra.
Enn fremur veitir stofan opinberum aðilum lögfræðiaðstoð við meðferð mála af ýmsu tagi, meðal annars við úthlutun og innköllun lóða, uppbyggingu innviða og innviðagjöld, fasteignatengd álitamál, leyfisveitingar, starfsmannamál og persónuvernd LEX veitir einnig leiðbeiningar og ráðgjöf við töku stjórnvaldsákvarðana og undirbúning annarra stjórnvaldsathafna, svo sem samningu reglna og reglugerða.
Á meðal helstu viðskiptavina LEX á þessu sviði má nefna íslenska ríkið, ýmsar ríkisstofnanir og sveitarfélög af öllum stærðum auk einstaklinga og fyrirtækja.