Félagaréttur

Félagaréttur er grunnstoð í rekstri fyrirtækja á Íslandi. Vönduð lagaleg umgjörð við stofnun og rekstur félaga tryggir réttaröryggi, kemur í veg fyrir ágreining og stuðlar að farsælum viðskiptum og traustum samskiptum milli eigenda.

Sérhæfð þekking og reynsla
Um áratugaskeið hefur LEX lögmannstofa veitt viðskiptavinum sínum yfirgripsmikla ráðgjöf á sviði félagaréttar. Við stofnun félaga er margt sem þarf að huga að en val á félagaformi fer að miklu leyti eftir framtíðaráformum stofnenda. Eftir stofnun er mikilvægt að tryggja að ákvarðanataka innan félags sé í samræmi við gildandi lög og reglur, þar sem félagaréttarlöggjöfin veitir skýrar leiðbeiningar um slíkt.
Á undanförnum árum hafa hagaðilar félaga í auknum mæli leitað til dómstóla vegna ágreinings þeirra á milli. LEX hefur verið leiðandi á Íslandi í meðferð slíkra mála á öllum dómstigum, oft þar sem brotið hefur verið á minnihlutaréttindum hluthafa.
Við kaup, sölu og samruna félaga reynir einnig á reglur félagaréttarins, og reynsla LEX á þessu sviði kemur viðskiptavinum til góða, hvort sem um er að ræða lítil eða stór verkefni, innlend eða alþjóðleg.
Á meðal verkefna LEX á þessu sviði má nefna heildstæða ráðgjöf við stofnun félaga, val á félagaformi og alla skjala- og samningagerð. Einnig framkvæmir LEX áreiðanleikakannanir þar sem lagalegur grundvöllur og staða félags er metin.
Við aðstoðum viðskiptavini við val á fjármögnun, hækkun og lækkun hlutafjár, lántöku með breytirétti og gerð skráningarlýsinga, auk þess að bjóða ráðgjöf vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar og uppbyggingar fyrirtækjasamstæðna. Þá veitum við ráðgjöf um samruna og/eða yfirtöku félaga, ásamt því að sinna skiptingu, slitum og breytingum á félagaformi.
Við höfum víðtæka reynslu af skráningu félaga á markað, gerð útgáfulýsinga og samskiptum við kauphöll og eftirlitsaðila, auk þess að veita ráðgjöf vegna breytinga á stjórnskipulagi og samþykktum félaga. Loks tryggjum við hagsmunagæslu fyrir félög og/eða hluthafa, sinnum stjórn hluthafafunda og aðalfunda, og stuðlum þannig að öruggum og skilvirkum ákvörðunum innan félagsins.