Beint í efni
Starfssvið

Flutninga- og sjóréttur

Flutninga- og sjóréttur

LEX lögmannsstofa veitir víðtæka ráðgjöf til innlendra og erlendra aðila á sviði flutninga- og sjóréttar. Hjá LEX lögmannsstofu starfa meðal reyndustu sérfræðinga landsins á þessu sviði, með áratugalanga reynslu af ráðgjöf og rekstri ágreiningsmála.

Innviðir

Sérhæfð þekking og reynsla

LEX lögmannsstofa sérhæfir sig í flutninga- og sjórétti og búa lögmenn stofunnar yfir áratuga reynslu af rekstri mála á þessu sviði. Í gegnum árin hefur LEX lögmannsstofa þjónustað innlend og erlend skipa- og útgerðarfélög, vátryggjendur, endurtryggjendur, sem og einstaklinga í málum á þessu sviði. Lögmenn LEX hafa átt aðkomu að flestum dómsmálum og stórum málum á Íslandi sem tengjast sviðinu. Þá hefur LEX lögmannsstofa víðtækt alþjóðlegt tengslanet, sem skiptir sköpum í alþjóðlegu umhverfi flutninga- og sjóréttar, þar sem mál hafa gjarnan tengsl við fleiri en eitt ríki, auk þess sem regluverk á sviðinu sækir fyrirmynd sína til erlendrar lagasetningar og alþjóðasáttmála.

Lega Íslands og fjarlægð frá öðrum mörkuðum gerir það að verkum að flutninga- og sjóréttur hefur mikla þýðingu fyrir íslenskt viðskiptalíf, sem og einstaklinga. Staðsetning landsins gerir það að mikilvægum viðkomustað í vöruflutningum á milli Evrópu og N-Ameríku, vöruflutningar til landsins eru samfélagslega mikilvægir og þjóðarbúgreinar landsins reiða sig á útflutning að verulegu leyti. Aðgengi að reynslumiklum sérfræðingum getur því skipt sköpum þegar ágreiningsmál koma upp.

Á meðal verkefna LEX á þessu sviði eru ráðgjöf og aðstoð við hvers kyns samningagerð á sviði flutninga- og sjóréttar, ásamt gerð skilmála, ráðgjöf og rekstur ágreiningsmála er varða meðal annars farmtjón, sjótjón, skipsströnd, árekstra á sjó, björgun skipa, niðurjöfnun sjótjóns og björgunarlaun og ráðgjöf og samningagerð í tengslum við kaup og sölu á skipum, skipasmíðar, o.fl.

Á meðal viðskiptavina LEX á þessu sviði eru innlend og erlend skipafélög auk innlendra og alþjóðlegra vátryggingafélaga

Sérfræðingar okkar fyrir
flutninga- og sjóréttur