Fjármögnun fyrirtækja og verkefna

Á LEX starfar fjöldi sérfræðinga sem komið hafa að mörgum stærstu og flóknustu fjármögnunar- verkefnum sem unnin hafa verið á Íslandi á undanförnum árum

Alhiða ráðgjöf og sérþekking
Reynsla LEX byggir á vinnu við fjármögnunarverkefni af nánast öllum mögulegum tegundum, svo sem hlutafjáraukningum, verkefnafjármögnun, skuldabréfafjármögnun á skipulegum verðbréfamarkaði svo eitthvað sé nefnt auk hefðbundinnar lánsfjármögnunar hvort sem er fyrir lántaka eða lánveitanda.
LEX hefur jafnframt annast gerð útboðs- og skráningarlýsinga við skráningu félaga á skipulega verðbréfamarkaði. Þá hafa sérfræðingar LEX mikla reynslu af vinnu við fjármögnun tengda kaupum og sölum á fyrirtækjum.
Meðal verkefna sem LEX hefur komið að er fjármögnun íslensku bankanna og stærstu fyrirtækja landsins. LEX hefur einnig unnið að samningum um uppbyggingu og fjármögnun stóriðjuverkefna og á markaði heild- og smásölu vegna raforku.