Beint í efni
Starfssvið

Samkeppnisréttur

Landscape

LEX lögmannsstofa hefur víðtæka reynslu af rekstri hvers kyns mála á sviði samkeppnisréttar. Lögmenn stofunnar hafa átt aðkomu að flestum af stærri samkeppnismálum sem rekin hafa verið hér á landi, auk þess sem þeir veita reglulega ráðgjöf til innlendra og erlendra aðila á þessu sviði.

Súlur

Sérhæfð reynsla og þekking

Á LEX starfa reyndir sérfræðingar á sviði samkeppnisréttar sem veita alhliða ráðgjöf um samkeppnisréttarleg álitaefni af hvaða tilefni sem er. Lögmenn LEX hafa gætt hagsmuna fjölda aðila við málsmeðferð hjá Samkeppniseftirlitinu, hvort sem er í samrunamálum, í tengslum við markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins eða í málum vegna rannsókna á meintum brotum gegn samkeppnislögum. Lögmenn LEX hafa annast tilkynningu fjölmargra samrunamála og hafa mikla reynslu af rekstri stærri samrunamála þar sem sáttaviðræður hafa leitt til samþykkis samruna með skilyrðum. Lögmenn LEX hafa jafnframt rekið fjölmörg mál á þessu réttarsviði fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála sem og fyrir dómstólum.

Lögmenn LEX hafa mikla reynslu af gerð samkeppnisréttaráætlana fyrir fyrirtæki sem ætlað er að tryggja að starfsemi þeirra sá ávallt í samræmi við samkeppnislög og draga þar með úr áhættu að því leyti. Hluti af innleiðingarferli slíkra áætlana er námskeiðahald fyrir starfsfólk viðkomandi fyrirtækja þar sem farið er yfir þær skyldur sem á þeim og viðkomandi fyrirtækjum hvíla samkvæmt samkeppnislögum.

LEX sinnir ráðgjöf við gerð samrunatilkynninga og samskipti við eftirlitsaðila vegna samrunamála, þar með talið sáttaviðræður og gerð sátta við Samkeppniseftirlitið. Jafnframt sinnum við ráðgjöf gagnvart Samkeppniseftirlitinu vegna fyrirspurna, andmælaskjala og rannsókna, þar á meðal rannsóknaraðgerða (húsleita).

Að auki rekum við mál fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála, íslenskum dómstólum, Eftirlitsstofnun EFTA og framkvæmdastjórn EB. Þá veitum við víðtæka ráðgjöf á sviði samkeppnisréttar, þar með talið gerð álitsgerða, og styðjum þannig viðskiptavini okkar í öllu sem varðar samkeppnisleg málefni.

Sérfræðingar okkar fyrir
samkeppnisréttur