Beint í efni
Starfssvið

Persónuvernd

Persónuvernd

Fyrirtæki og opinberar stofnanir þurfa að rata í stafrænum heimi, mótuðum af stórgagnavinnslu, skýjalausnum, gervigreind og netvæðingu hluta (IoT) – þar sem persónuvernd er mikilvægari en nokkru sinni fyrr.

Skólavörðustígur

Sérhæfð þekking og reynsla

Í mörg ár hefur LEX lögmannsstofa veitt fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum víðtæka ráðgjöf á sviði persónuverndarréttar. Breidd reynslu okkar gerir viðskiptavinum kleift að vera í fararbroddi stafrænnar nýsköpunar, en tryggir jafnframt fulla lagalega eftirfylgni í síbreytilegu tæknilegu umhverfi.

LEX hefur jafnframt verið leiðandi varðandi innleiðingu persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins (GDPR) á Íslandi. Við höfum ráðlagt mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins, sveitarfélögum og opinberarum stofnunum um hvernig best sé að uppfyllaskilyrði GDPR og þar með styrkja persónuvernd enn frekar.

Meðal þjónustu okkar er heildstæð úttekt á fylgni við GDPR og tengda íslenska löggjöf, svo og ráðgjöf um samskipti við Persónuvernd. Við veitum einnig viðskiptavinum ráðgjöf þegar Persónuvernd hefur eftirlits- eða rannsóknaraðgerðir, til að tryggja árangursríka hagsmunagæslu á öllum stigum málsmeðferðar.

Að lokum býður LEX þjónustu persónuverndarfulltrúa, sem gerir viðskiptavinum kleift að fela okkur mikilvæga ábyrgð á eftirfylgni regluverksins. Þessi heildstæða nálgun staðfestir stöðu LEX sem trausts samstarfsaðila þeirra sem leita öflugrar og áreiðanlegrar lögfræðiráðgjafar á sviði upplýsingatækni og persónuverndar.

Sérfræðingar okkar fyrir
persónuvernd