
LEX lögmannsstofa
Afburðaþekking á meginsviðum íslenskrar lögfræði
Í mörgum af flóknustu og mikilvægustu málum sem rekin hafa verið á Íslandi, hefur LEX lögmannstofa verið ítrekað valin til ráðgjafar.

Leiðandi í þjónustu við íslenskt atvinnulíf
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á.
Lögfræðingar LEX hafa afburða þekkingu á meginsviðum íslenskrar lögfræði
Fólkið okkar

Guðrún Lilja Sigurðardóttir
Guðrún Lilja Sigurðardóttir er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Landsrétti. Í störfum sínum hjá LEX hefur Guðrún Lilja lagt megináherslu á samkeppnisrétt, skattarétt og félagarétt , auk þess sem hún hefur annast verkefni á sviði sjó- og flutningaréttar, samningaréttar, málflutnings og gjaldþrotaréttar, einkum mál er varða riftun og endurheimt verðmæta.
Lára Herborg Ólafsdóttir
Lára er meðal fremstu sérfræðinga landsins á sviði upplýsingatækniréttar, hugverkaréttar og persónuverndar, auk þess að búa yfir víðtækri reynslu á sviði útboðs- og verktakaréttar, samkeppnisréttar og stjórnsýsluréttar. Lára hefur sinnt ráðgjöf til fjölmargra fyrirtækja, sveitarfélaga og opinberra stofnana um árabil.
Guðjón Ármannsson
Guðjón Ármannsson er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti. Guðjón hóf störf hjá LEX árið 2007 en starfaði áður hjá óbyggðanefnd.
Guðjón sérhæfir sig í rekstri dómsmála og hefur sérfræðiþekkingu á sviði eignaréttar, auðlindaréttar, skaðabótaréttar, stjórnsýsluréttar, útboðsréttar og skipulags- og byggingarlöggjafar.
Ólafur Haraldsson
Ólafur er hæstaréttarlögmaður með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti. Ólafur hóf störf hjá Málflutningsskrifstofunni Suðurlandsbraut 4A að loknu lagaprófi árið 1992 en hóf svo eigin rekstur á árinu 1995. Hann gekk til liðs við LEX á árinu 1999 og hefur starfað þar óslitið síðan.
Kristín Edwald
Kristín hóf störf hjá LEX árið 2002. Kristín er einn af reyndustu málflytjendum landsins fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti Íslands. Kristín er meðal fremstu sérfræðinga landsins á sviði vátryggingaréttar og skaðabótaréttar.
Alþjóðleg matsfyrirtæki hafa um árabil valið LEX sem eina af leiðandi lögmannsstofum landsins.
„LEX Law Offices boasts a broad corporate and commercial offering, including public M&A mandates. The law firm also possesses high-level expertise in banking and finance. Its lawyers additionally assist with the compliance and regulatory aspects of transactions.“
„LEX Law Offices boasts a broad corporate and commercial offering, including public M&A mandates. The law firm also possesses high-level expertise in banking and finance. Its lawyers additionally assist with the compliance and regulatory aspects of transactions.“